2.5.2008 | 20:29
Fæðingarorlof.....eða sauðburður í eyjum
Ég hef ekki séð mér fært að kíkja í tölvu síðustu vikuna, vegna mikilla anna, m.a. sauðburður hjá okkur Dallasbændum, ég hef nú verið í fæðingarorlofi eins og "vinir" mínir kalla það. Þetta er skemmtilegasti tími ársins hjá okkur í Dallas, nú fæðast lömb á hverjum degi, hvert öðru fallegra. Nú eiga sjö eftir að bera og vonandi klárast þetta um helgina, þetta er svolítil törn á meðan þetta gengur yfir það þarf að líta eftir þeim á þriggja til fjögurra tíma fresti.
Ég missti meira að segja af meistaradeildarleikjunum í vikunni, var að taka á móti... en Liverpool féll víst úr keppni enda áttu þeir aldrei að vera í fjögurra liða úrslitum því þeir komust auðvitað bara þangað með dyggri aðstoð flautukóngsins.
Ég ætlaði að setja inn mynd sem ég fékk senda í dag frá einum góðum vini mínum, það gekk bara ekki en ég ætla að reyna að setja hana í myndalbúmið í staðinn, Rúnar endilega kíktu á hana!!
Ég er líka með nokkrar landnámshænur í garðinum heima, konunni minni til mikillar ánægju, eða þannig ég skíri þær eftir leikmönnum Man United, enda miklu auðveldara að slátra þeim þegar þess þarf.
Meira seinna, ætla að kíkja á lömbin mín....
Færsluflokkar
Bloggvinir
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku:
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku:
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.